27.04.1965
Neðri deild: 72. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2352 í B-deild Alþingistíðinda. (2126)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (BGr):

Borizt hefur svo hljóðandi bréf: „Þar sem ég vegna aðkallandi anna heima í héraði mun ekki geta sinnt þingstörfum næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi, og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþ. óska ég þess, að 1. varamaður Framsfl. í Austurlandskjördæmi, Vilhjálmur Hjálmarsson bóndi, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Halldór Ásgrímsson,

2. þm. Austf.“

Vilhjálmur Hjálmarsson hefur áður undirritað eiðstaf og kjörbréf hans verið samþ. og býð ég hann velkominn til starfa.