16.01.1968
Sameinað þing: 27. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2224 í B-deild Alþingistíðinda. (2124)

Þingfrestun og þinghlé

forsrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Hinn 9. janúar 1968 var gefið út svo hljóðandi forsetabréf:

„Forseti Íslands gjörir kunnugt: Ég hef ákveðið, samkv. till. forsrh., að Alþingi, 88. löggjafarþing, skuli koma saman til framhaldsfundar þriðjudaginn 16. janúar 1968, kl. 14.00.

Gjört að Bessastöðum, 9. janúar 1968.

Ásgeir Ásgeirsson.

Bjarni Benediktsson.

Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfundar.“

Samkv. þessu hefjast nú framhaldsfundir Alþingis. Ég leyfi mér að óska hæstv. forseta og hv. alþm. og starfsfólki Alþ. gleðilegs árs og þakka þeim fyrir liðna árið, um leið og ég býð þá velkomna til þingstarfa á ný, og læt í ljós þá ósk og von, að störf okkar megi verða landi og lýð til blessunar.