19.12.1968
Neðri deild: 41. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 2207 í B-deild Alþingistíðinda. (2295)

Þingsetning

Lúðvík Jósefsson:

Ég vil fyrir hönd okkar þdm. þakka hæstv. forseta fyrir góðar óskir og hlý orð í okkar garð. Ég þakka honum fyrir samstarfið við okkur þm. og góða og röggsamlega fundarstjórn. Ég vil óska hæstv. forseta og fjölskyldu hans gleðilegrar jólahátíðar og góðs komandi árs, og ég bið hv. þm. að taka undir þessa óskir mínar til forseta með því að rísa úr sætum. [Dm. risu úrsætum.]