21.04.1969
Efri deild: 76. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 170 í C-deild Alþingistíðinda. (2436)

38. mál, aðstoð til vatnsveitna

Steinþór Gestsson:

Herra forseti. Í grg. með frv. þessu segir, að frv. sé flutt vegna fjárhagsörðugleika hjá Vestmannaeyjaveitu m. a. Mér er ekki kunnugt um, að ráðamenn heima í héraði telji, að málefni Vestmanneyinga hafi fengið nauma fyrirgreiðslu hjá Alþ. og ríkisstj. Ég tel því ekki, að málefni Vestmanneyinga knýi á um þessa lagabreytingu. Hins vegar get ég fallizt á, að gerð sé athugun eins og sú, sem lagt er til í nál. meiri hl., að gerð verði, og mun því greiða atkv. með því, að frv. verði vísað til ríkisstj.