25.04.1969
Efri deild: 78. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 612 í C-deild Alþingistíðinda. (2910)

227. mál, vernd barna og ungmenna

Flm. (Auður Auðuns) :

Herra forseti. Um þetta frv. á í öllum aðalatriðum það sama við og um það frv., sem var hér síðast til umr. á undan. Það er flutt að beiðni Sambands ísl. sveitarfélaga, og er með því lagt til, að ráðh. verði heimilað að fela félagsmálaráði, sem sveitarstjórnir utan Reykjavíkur kynnu að koma á stofn hjá sér, störf barnaverndarnefndar að nokkru eða öllu leyti. Ég leyfi mér að leggja til, að frv. verði að umr. lokinni vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og félmn.