20.03.1969
Efri deild: 61. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 675 í B-deild Alþingistíðinda. (591)

139. mál, Lífeyrissjóður barnakennara

Frsm. (Ólafur Björnsson):

Herra forseti. Um efni þessa frv. leyfi ég mér að vísa til framsöguræðu hæstv. fjmrh. við 1. umr. málsins. Fjhn. hefur haft málið til athugunar, og eins og álit hennar á þskj. 361 ber með sér, leggja allir þeir nm., sem viðstaddir voru á þeim fundi, þegar málið var afgreitt, til, að það verði samþ. óbreytt.