17.12.1968
Neðri deild: 31. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 803 í B-deild Alþingistíðinda. (761)

3. mál, læknaskipunarlög

Sigurvin Einarsson:

Herra forseti. Ég er þakklátur hæstv. heilbrmrh. fyrir það að hlutast til um, að þetta frv. verði athugað dálítið nánar í þinghléinu, og ég held, að það sé mjög skynsamlega ráðið, og sérstaklega tek ég undir þau ummæli hans, að hann vill jafnvel auka íhlutun heimafólksins um þessi mál, þ.e.a.s. leita betur eftir þeirra áliti, svo að ég held, að þetta sé mjög vel ráðið, að þannig sé hagað gangi þessa máls, eins og hann leggur til. Ég er honum þakklátur fyrir það.