10.03.1969
Neðri deild: 62. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 838 í B-deild Alþingistíðinda. (883)

128. mál, fiskveiðar í landhelgi

Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Út af fsp. hv. 4. þm. Reykv. þá vil ég upplýsa það, að á sínum tíma — ég hygg, að það séu tæplega 2 ár síðan þá var látinn upp af einstaklingi hér í bæ áhugi fyrir því að koma slíkum samningsviðræðum á, sem hann minntist hér á við Ísraelsmenn. En á því var ekki sýndur áhugi af hálfu íslenzku ríkisstj., og það mál hefur ekki verið vakið upp síðan.