16.03.1970
Neðri deild: 60. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1246 í B-deild Alþingistíðinda. (1645)

114. mál, Minningarsjóður Jóns Sigurðssonar frá Gautlöndum

Frsm. (Guðlaugur Gíslason):

Herra forseti. Fjhn. hefur haft þetta mál til athugunar og er því samþykk, að það verði samþ. óbreytt. Það fylgir allítarleg grg. með frv. og einnig kemur þar fram sem fskj. samþykki þeirra aðila, sem þarna eiga hlut að máli, að þær breytingar verði gerðar um ráðstöfun á Minningarsjóði Jóns Sigurðssonar, sem frv. gerir ráð fyrir.