04.11.1969
Efri deild: 10. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 277 í C-deild Alþingistíðinda. (2507)

49. mál, siglingalög

Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson) :

Herra forseti. Breyt. á siglingal., sem felst í frv. þessu, tekur til 2. málsl. 6. gr. l. varðandi skráningu skipa af skipaskrá. Breyt. er fram komin í sambandi við endurskoðun l. um skráningu skipa, en frv. um það liggur einnig fyrir Alþ. samhliða þessu frv. Svo sem um hið fyrra frv., er Þórður Eyjólfsson fyrrverandi hæstaréttardómari með í þeirri endurskoðun, og er nánar gerð grein fyrir frv. í grg., er hann samdi með því.

Ég legg til, herra forseti, að frv. verði að lokinni þessari umr., vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.