26.10.1970
Neðri deild: 5. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 2143 í B-deild Alþingistíðinda. (2288)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (MÁM):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt:

„Reykjavík, 23. okt. 1970.

Þar sem ég vegna sérstakra anna heima fyrir mun ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Austurlandskjördæmi, Tómas Árnason hrl., taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Vilhjálmur Hjálmarsson,

5. þm. Austf.

Til forseta neðri deildar.“

Kjörbréf Tómasar Árnasonar hefur áður verið skoðað og er hann boðinn velkominn til starfa.