17.12.1970
Sameinað þing: 18. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 578 í B-deild Alþingistíðinda. (375)

1. mál, fjárlög 1971

Forseti (BF):

Forseti vill geta þess, að flm. að 3. lið till. á þskj. 280, þeir Björn Jónsson og Hannibal Valdimarsson, hafa fyrir ábendingu forseta breytt 2. tölul. till. þannig, að þar kemur nú talan 1800 þús. í stað 3 millj. kr. Forseti telur ekki þörf á að leita afbrigða fyrir þessari till., en fellst á fyrir sitt leyti, að till. liggi fyrir þannig breytt til umr. og afgreiðslu.