03.05.1972
Neðri deild: 68. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1427 í B-deild Alþingistíðinda. (1208)

261. mál, veðtrygging iðnrekstrarlána

Frsm. (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Herra forseti. Þetta frv. er flutt til að auðvelda afgreiðslu rekstrarlána til iðnaðarins, eins og gerð var grein fyrir af hæstv. ráðh., og þar er nánast um að ræða samræmingu við lánamál annarra atvinnugreina.

Þetta frv. hefur verið rætt í fjhn. N. boðaði til viðtals bankastjóra Seðlabankans og leitaði álits hjá landssamtökum iðnaðarmanna. Álit þessara beggja aðila var jákvætt. Fjhn. leggur til, að þetta frv. verði samþ. óbreytt.