12.05.1972
Sameinað þing: 67. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 400 í D-deild Alþingistíðinda. (3860)

277. mál, endurskoðun stjórnarskrárinnar

Frsm. (Gísli Guðmundsson):

Herra forseti. Til allshn. hefur verið vísað tveim till. til þál. um endurskoðun stjórnarskrárinnar, á þskj. 525 og 531. Það hefur orðið að samkomulagi í n. að afgreiða báðar þessar till. sameiginlega og þannig, að n. flytji sjálf nýja till. um málið, og það er sú till., sem hér er lögð fram á þskj. 723 og sem samkomulag er um við flm. hinna till.

Málið er flutt af n., og legg ég til fyrir hönd n., að því verði vísað til síðari umr.