21.12.1972
Efri deild: 46. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1717 í B-deild Alþingistíðinda. (1304)

Þinghlé

Geir Hallgrímsson:

Herra forseti. Ég vil leyfa mér fyrir hönd þdm. að þakka hlýjar óskir forseta í okkar garð. Ég vil fyrir hönd okkar allra þakka forseta fyrir röggsama og réttsýna fundarstjórn, ánægjuleg samskipti og lipurð í samvinnu við okkur þdm. í hvívetna. Ég óska honum og fjölskyldu hans gleðilegra jóla, góðs og farsæls nýárs og vonast til þess, að við sjáum hann ánægðan og glaðan í bragði á nýju ári, þegar við hittumst hér næst.