18.12.1973
Sameinað þing: 38. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1541 í B-deild Alþingistíðinda. (1408)

136. mál, grænfóðurverksmiðjur

Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson) :

Herra forseti. Ég vil út af fsp. hv. 4. þm. Austf. segja, að það hefur ekki breyst neitt frá minni hendi um, að verksmiðjan á Mýrum sé næsta verksmiðja, sem reist verði, og það verður reynt að gera það, sem hægt er, til að standa við það. Hins vegar hefur dæmið þar breyst vegna þeirra verðbreytinga, sem orðið hafa, og þess, sem við urðum að gera á s. l. sumri, að kaupa verksmiðjuna í Dölum til að forða frá því, að það yrði að engu, sem þar var búið að gera og mikið búið að vinna að.

Ég sá ekki ástæðu til að fara að nefna hér tölur um kostnað við framkvæmdir þessar, því að ég hafði ekki svo nýjar tölur, að þær hefðu neitt gildi, og sé þess vegna ekki ástæðu til þess.