21.12.1974
Sameinað þing: 30. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1360 í B-deild Alþingistíðinda. (1172)

Þingfrestun

Ragnar Arnalds:

Fyrir hönd okkar alþm. vil ég þakka hæstv. forseta Sþ. góðar óskir okkur til handa. Ég þakka honum ánægjulegt samstarf og ágæta fundarstjórn það sem af er þessu þingi. Ég óska honum og fjölskyldu hans gleðilegra jóla og farsæls nýárs, um leið og ég vil leyfa mér að vonum að við megum öll hittast heil til starfa að loknu jólaleyfi. Ég vil biðja hv. þm. að taka undir óskir mínar með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]