14.11.1974
Efri deild: 7. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 195 í B-deild Alþingistíðinda. (128)

25. mál, meðferð einkamála í héraði

Axel Jónsson:

Herra forseti. Ég vil strax við 1. umr. þessa máls láta það koma fram að ég er þakklátur því að hér er árangur af þeirri þáltill., sem var samþ. á Alþ. í febr. 1972 og ég var 1. flm. að.