16.05.1975
Efri deild: 95. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4359 í B-deild Alþingistíðinda. (3627)

15. mál, happdrættislán ríkissjóðs vegna Norðurvegar og Austurvegar

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson) :

Þetta var nokkuð löng „örstutt athugasemd“ hjá hv. þm., en honum er það fyrirgefið. Hins vegar sagði hv. þm. að hann ætlaði ekki að deila við forseta um það hve oft hann hefði tekið til máls. Það er rétt, það er ekki rétt að deila um staðreyndir.