16.05.1975
Neðri deild: 93. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4423 í B-deild Alþingistíðinda. (3764)

Starfslok neðri deildar

Magnús T. Ólafsson:

Hæstv. forseti. Ég vil gjarnan mega mæla fyrir hönd okkar dm. allra þegar ég tjái hæstv. forseta þakkir fyrir hlýleg orð og góðar óskir í okkar garð. Sömuleiðis færi ég fyrir hönd dm. hæstv. forseta þakkir fyrir samstarfið á þinginu sem senn lýkur, fundarstjórn og fyrirgreiðslu mála. Ég óska af okkar hálfu hæstv. forseta og fjölskyldu hennar heilla og vona að við hittumst heil á næsta þingi. Ég bið hv. dm. að taka undir orð mín með því að rísa úr sætum. — [Dm. risu úr sætum.]