05.04.1976
Efri deild: 84. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2967 í B-deild Alþingistíðinda. (2441)

211. mál, Aflatryggingasjóður sjávarútvegsins

Frsm. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Sjútvn. hefur haft þetta mál til meðferðar. Á fundi n. mættu fulltrúar sjútvrn., Þórður Ásgeirsson deildarstjóri og Jón B. Jónsson fulltrúi. Sömuleiðis mætti þar til umr. um þetta mál og reyndar fleiri Kristján Ragnarsson frá Landssambandi ísl. útvegsmanna.

Menn eru sammála um að hér sé fyrst og fremst um nokkurs konar hreingerningu að ræða eftir þá miklu breytingu sem gerð var á sjóðakerfi sjávarútvegsins og í þessu frv. séu engin efnisatriði sem valdið geti deilum. Varð n. einróma sammála um að mæla með samþykkt þessa frv. eins og það liggur fyrir.