10.10.1975
Sameinað þing: 1. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 5 í B-deild Alþingistíðinda. (5)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfs

Frsm. (TÓmas Árnason):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur rannsakað kjörbréf frú Vilborgar Harðardóttur blaðamanns, Laugavegi 46B í Reykjavík, en hún er 1. varaþm. Alþbl. í Reykjavík og tekur sæti á Alþ. í forföllum Magnúsar Kjartanssonar sem er sjúkur.

Kjörbréfanefnd hefur ekkert fundið athugavert við kjörbréfið og mælir með því samhljóða að það verði samþ. og kosning Vilborgar Harðardóttur tekin gild.