28.04.1977
Efri deild: 67. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3871 í B-deild Alþingistíðinda. (2831)

209. mál, skipulagslög

Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Þetta frv. til l. um breytingu á skipulagslögum er samferða frv. til byggingarlaga sem hér var rætt áðan. Það er samið af hinni sömu n. og felur í sér nauðsynlegar breytingar í samræmi við það frv. Þetta frv. hefur einnig gengið í gegnum Nd. og verið samþ. þar, og legg ég til að því verði vísað til 2. umr. og félmn.