22.12.1978
Sameinað þing: 42. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2004 í B-deild Alþingistíðinda. (1736)

Þingfrestun

Forsrh. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Forseti Íslands hefur gefið út svo hljóðandi bréf:

„Forseti Íslands gjörir kunnugt: Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsrh. umboð til þess að fresta um sinn fundum Alþingis, 100 löggjafarþings, frá 22. des. 1978 eða síðar, ef henta þykir, enda verði þingið kvatt til fundar á ný eigi síðar en 25. jan. 1979.

Gjört í Reykjavík, 20. desember 1978.

Kristján Eldjárn.

Ólafur Jóhannesson.

Forsetabréf um frestum á fundum Alþingis.“ Samkv. þessu umboði og með tilvísun til samþykkis Alþingis lýsi ég hér með yfir því, að fundum þessa Alþingis, 100. löggjafarþings, er frestað frá 22. des. og verður þingið kvatt til fundar á ný eigi síðar en 25. jan. 1979.

Leyfi ég mér að óska hv. alþm. og starfsmönnum þingsins svo og landslýð öllum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs.