25.01.1979
Sameinað þing: 43. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 2007 í B-deild Alþingistíðinda. (1738)

Framhaldsfundir eftir þingfrestun

Forseti (Gils Guðmundsson):

Samkvæmt forsetabréfi því, sem hæstv. forsrh. hefur nú lesið, tekur Alþingi til starfa á ný, og er þingfundur settur.

Ég þakka hæstv. forsrh. góðar óskir í garð okkar þm. og starfsfólks Alþ. Ég óska öllum hv. alþm. gleðilegs nýárs, þakka samstarfið á liðnu ári og læt í ljós þá von, að vel megi til takast um störf Alþingis á því ári sem nú er hafið.