08.03.1979
Sameinað þing: 64. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3107 í B-deild Alþingistíðinda. (2401)

207. mál, þingrof og nýjar kosningar

Sverrir Hermannsson:

Herra forseti. Í grg. hv. þm. Sighvats Björgvinssonar kemur fram, að líklegt er að till. sem þessi hlyti meirihlutafylgi á Alþ. ef atkvgr. færi fram á mánudaginn kemur. Þetta eflir mig enn í afstöðu til þessarar till. Og enn fremur eflir það mig að segja já, að ég er á öndverðum meiði við hv. þm. Stefán Jónsson, að ég hlakka fremur en hitt til að starfa með hv. þm. Sighvati Björgvinssyni. Sverrir Hermannsson segir já.