14.03.1979
Sameinað þing: 68. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3222 í B-deild Alþingistíðinda. (2524)

165. mál, fiskveiðiheimildir Íslendinga og Færeyinga

Einar Ágústsson:

Herra forseti. Það er skoðun þingflokks Framsfl., að ákvörðunartaka um uppsögn allra fiskveiðisamninga við erlendar þjóðir sé ekki mál sem rétt sé að tengja við þáltill. þessa sem einungis fjallar um tímabundinn samning um fiskveiðiréttindi Færeyinga á gagnkvæmnisgrundvelli. Ég segi því nei.