29.03.1979
Sameinað þing: 75. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3722 í B-deild Alþingistíðinda. (2906)

209. mál, heilbrigðisþjónusta

Flm. (Oddur Ólafsson):

Herra forseti. Ég vildi aðeins þakka hæstv. heilbrrh. fyrir góðar undirtektir undir þessa till. svo og þeim öðrum þm. sem hafa talað hér. Mér þykir vænt um þær undirtektir sem till. fær, og ég hef þá trú að ef gengið verður af röggsemi í þessa könnun, þá geti hún orðið til nokkurra umskipta í bæði þjónustu og kostnaði við heilbrigðisþjónustuna í landinn.