06.04.1979
Efri deild: 78. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 3969 í B-deild Alþingistíðinda. (3109)

154. mál, skipti á dánarbúum og félagsbúum

Frsm. (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Herra forseti. Þessi tvö mál, þetta sem nú er tekið fyrir og það sem verið var að afgreiða, hafa orðið samferða í gegnum allshn. Þetta mál var sent til umsagna og umsagnir um það hafa borist frá sömu aðilum, Vinnuveitendasambandi Íslands og Vinnumálasambandi samvinnufélaganna, sem báðir mæla með frv. Ég sé ekki fremur en í fyrra tilviki ástæðu til að ræða um þetta mál efnislega, það var gert hér við 1. umr., og læt nægja að skýra frá því, að allshn. leggur til að þetta frv. verði einnig samþ. óbreytt.