23.04.1979
Sameinað þing: 81. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4079 í B-deild Alþingistíðinda. (3188)

Rannsókn kjörbréfs

Frsm. (Eðvarð Sigurðsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur haft til athugunar kjörbréf Bjarnfríðar Leósdóttur, 2. varaþm. Alþb. í Vesturlandskjördæmi. Kjörbréfanefnd hefur ekkert við kjörbréfið að athuga og leggur til að kosning Bjarnfríðar verði tekin gild og kjörbréfið samþykkt.