07.11.1978
Sameinað þing: 15. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 417 í B-deild Alþingistíðinda. (344)

Rannsókn kjörbréfs

Forseti (Friðjón Þórðarson):

Mér hefur borist svohljóðandi bréf:

„Oddur Ólafsson, 4. þm. Reykn., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda til að sitja fund Sameinuðu þjóðanna, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Reykjaneskjördæmi, Eiríkur Alexandersson bæjarstjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Bragi Sigurjónsson,

forseti Ed.

Til forseta Sþ.“

Mér hefur borist annað bréf, svo hljóðandi, dags. í Reykjavík, 6. nóv. 1978:

„Ólafur Jóhannesson, 1. þm. Norðurl. v., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Norðurlandskjördæmi vestra, Stefán Guðmundsson, Sauðárkróki, taki sæti á Álþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Bragi Sigurjónsson,

forseti Ed.

Til forseta Sþ.“

Ég vil leyfa mér að fara þess á leit víð hv. formann kjörbréfanefndar, að hann kveðji nefndina saman og láti athuga kjörbréf þessi, og geri ég 10 mínútna fundarhlé í því skyni á þessum fundi. — [Fundarhlé]