07.11.1978
Sameinað þing: 15. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 429 í B-deild Alþingistíðinda. (369)

Umræður utan dagskrár

Forseti (Friðjón Þórðarson):

Hv. formaður þfkn. hefur lokið máli sínu. Eins og tekið var fram áðan er ekki ætlast til að langar umr. verði um þetta efni í dag. Það gefast nóg tækifæri til þess síðar og skal ég hlutast til um að svo verði. En ef einhverjir alþm. óska eftir að gera örstutta aths., þá er það heimilt.