18.05.1979
Neðri deild: 91. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5017 í B-deild Alþingistíðinda. (4333)

151. mál, framhaldsskólar

Frsm. minni hl. (Ellert B. Schram):

Herra forseti. Ég lít ekki svo á að þetta sé önnur ræða af minni hálfu, heldur gerði ég hlé á máli mínu til þess að afbrigði gætu fengist fyrir þessari till., og ég óska eindregið eftir því að afbrigði séu veitt, þannig að þessi till. fáist rædd. Ég get ekki séð að hægt sé að ræða till. fyrr en afbrigðin eru veitt, og annaðhvort er um það að ræða að fá afbrigði fyrir till. núna eða fresta þessari umr.