19.05.1979
Sameinað þing: 99. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5090 í B-deild Alþingistíðinda. (4455)

253. mál, rannsókna- og þróunarstarfsemi í þágu atvinnuveganna

Frsm. (Þórarinn Sigurjónsson):

Herra forseti. Fjvn. hefur rætt þessa till. til þál., sem er á þskj. 515. Er hún um langtímastefnu í rannsókna- og þróunarstarfsemi í þágu atvinnuveganna. N. fékk á fund sinn framkvæmdastjóra Rannsóknaráðs ríkisins. Skýrði hann einstaka þætti þessara mála og mikilvægi eflingar rannsóknastarfsemi. Nm. er ljós sú brýna nauðsyn sem felst í þessari till. um að gerð verði langtímaáætlun í rannsókna- og þróunarstarfsemi í þágu atvinnuveganna. Það er því sammála till. allra nm. að mæla með samþykkt hennar.