22.05.1979
Sameinað þing: 102. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5240 í B-deild Alþingistíðinda. (4626)

264. mál, fiskeldi að Laxalóni

Þórarinn Sigurjónsson:

Herra forseti. Allshn. Nd. hefur fjallað um þetta mál í vetur og leggur til að þáltill. verði samþ. á þessu þingi án þess að vera rædd í nefnd. Ég vil leyfa mér í þessum umr. að óska eftir því, að þessu máli verði vísað til nefndar eins og öðrum málum sem koma fyrir Sþ. Ég legg til að málinu verði vísað til allshn. Sþ., þar sem það yrði skoðað eins og önnur mál sem lögð eru fram til samþykktar.