22.05.1979
Neðri deild: 97. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5273 í B-deild Alþingistíðinda. (4682)

291. mál, Framleiðsluráð landbúnaðarins

Forseti (Ingvar Gíslason):

Ég vil enn endurtaka það, að ég tel að þessi atkvgr. hafi farið rétt fram og að þessi till. geti staðið alveg sjálfstætt, eins og ég hef hér lýst og borið mig saman við kunnáttumann á vegum þingsins í því efni. Ég tel að það sé ekkert því til fyrirstöðu að þetta fari saman, og ég mómæli því, að hér hafi nokkur bolabrögð verið höfð í frammi eða að ég hafi á nokkurn hátt staðið óeðlilega að þessari atkvgr. Hv. þd. hefur með þátttöku sinni í atkvgr. staðfest það, sem ég hef hér gert, og ákveðið sjálf hvernig fara skuli með.