23.05.1979
Sameinað þing: 103. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5282 í B-deild Alþingistíðinda. (4736)
264. mál, fiskeldi að Laxalóni
Forseti (Gils Guðmundsson):
Ég hef borið mig saman við skrifstofustjóra Alþingis um þetta atriði og hann segist líta þannig á, að það sé eðlilegt að leggja þann skilning í þessa till. að Alþ. kjósi þessa þriggja manna nefnd. Hins vegar er hann mér sammála um það, að ef bornar eru brigður á að þetta sé eðlileg málsmeðferð, þá sé ekki um annað að ræða en láta hv. Alþ. skera úr um hvorn háttinn það vill hafa á þessu máli.