18.03.1980
Neðri deild: 45. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1176 í B-deild Alþingistíðinda. (1192)

45. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Magnús H. Magnússon:

Herra forseti. Ég mun við 3. umr. um frv, til l. um breyt. á l. um tekjustofna sveitarfélaga bera fram till. sem hlífir þeim tekjulægstu við þeim hækkunum sem annars mundi leiða af samþykkt brtt. sem nú er verið að greiða atkv, um. Í trausti þess, að brtt. mín verði samþykkt, og þar sem ég tel að nauðsynlegt sé fyrir sveitarfélögin að fá bætt að hluta það tjón, sem þau hafa orðið fyrir vegna verðbólgunnar, þá segi ég já.