27.03.1980
Sameinað þing: 39. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1512 í B-deild Alþingistíðinda. (1462)

116. mál, fjárlög 1980

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Þm. Alþfl. hafa haft þá afstöðu við fjárlagaafgreiðsluna nú að flytja ekki till. um útgjaldaaukningu nema flytja jafnharðan till. um annaðhvort sparnað eða tekjuöflun á móti. Þar sem hér er búið, þegar að þessari atkvgr. kemur, að fella allar tekjuöflunartillögur sem flm. þessarar till. voru áður búnir að flytja til þess að afla fjár til þeirra framkvæmda sem till. fjallar um, er ógerlegt annað fyrir þm. Alþfl. en að sit ja hjá í þessari atkvgr., þar sem ekki hefur verið séð fyrir fjáröflun til umræddra þarfa. Ég greiði því ekki atkv.