19.05.1980
Sameinað þing: 64. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2878 í B-deild Alþingistíðinda. (2878)

Almennar stjórnmálaumræður

Forseti (Jón Helgason):

Umræðan fer þannig fram, að hver þingflokkur fær til umráða hálfa klukkustund. Auk þess fá sjálfstæðismenn, sem styðja ríkisstj., 20 mínútna ræðutíma. Umferðir verða tvær, 15–20 mínútur í fyrri umferð og 10–15 mínútur í þeirri síðari, en sjálfstæðismenn, sem styðja ríkisstj., fá til umráða 10–15 mínútur í þeirri síðari. Röð flokkanna verður þessi í báðum umferðum: Sjálfstfl., sjálfstæðismenn sem styðja ríkisstj., Alþfl., Framsfl. og Alþb.

Ræðumenn verða: Fyrir Sjálfstfl. Geir Hallgrímsson, 1. þm. Reykv., í fyrri umferð, en Sverrir Hermannsson, 4. þm. Austurl., í þeirri síðari. Fyrir sjálfstæðismenn, sem styðja ríkisstj., Gunnar Thoroddsen forsrh. í fyrri umferð, en Pálmi Jónsson landbrh. í síðari umferð. Fyrir Alþfl. Benedikt Gröndal, 4. þm. Reykv., og Jóhanna Sigurðardóttir, 10. landsk. þm., í fyrri umferð, en Árni Gunnarsson, 6. þm. Norðurl. e., í þeirri síðari. Fyrir Framsfl. í fyrri umferð Ingvar Gíslason menntmrh., en í síðari umferð Steingrímur Hermannsson sjútvrh. Fyrir Alþb. tala Svavar Gestsson félmrh. og Skúli Alexandersson, 4. þm. Vesturl., í fyrri umferð, en Ólafur Ragnar Grímsson, 11. þm. Reykv., í síðari umferð.

Hefst nú umr. og tekur fyrst til máls Geir Hallgrímsson, 1. þm. Reykv., og talar af hálfu Sjálfstfl.