28.05.1980
Efri deild: 104. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 3143 í B-deild Alþingistíðinda. (3096)

180. mál, lánsfjárlög 1980

Frsm. 1. minni hl. (Ólafur Ragnar Grímsson):

Herra forseti. Nefndin vann að þessu frv. í samvinnu við fjh.- og viðskn. Nd. 1. minni hl. n., sem skipaður var stuðningsmönnum ríkisstj., leggur eindregið til að þetta frv. verði samþykkt, enda samrýmist það þeim meginmarkmiðum í efnahagsmálum sem ríkisstj. hefur sett sér.