12.12.1979
Sameinað þing: 1. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 8 í B-deild Alþingistíðinda. (9)

Rannsókn kjörbréfs

Aldursforseti (Gunnar Thoroddsen):

Frsm. kjördeildanna þriggja hafa hver fyrir hönd sinnar kjördeildar lagt til að þau kjörbréf, sem deildirnar hafa haft með höndum, verði samþykkt og kosning tekin gild. Tillögur kjördeildanna verða bornar upp í einu lagi ef enginn mælir því í gegn.