20.02.1980
Efri deild: 41. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 861 í B-deild Alþingistíðinda. (956)

44. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Eiður Guðnason:

Herra forseti. Í ljósi þess, að þær till., sem hér er verið að greiða atkv. um, eru vel undirbúnar, vel grundaðar og íhugaðar, og í ljósi þess, að mikil nauðsyn er að fólk hafi nokkra vissu um það, hvernig skattar verða á lagðir og hvaða skatta það muni hljóta, segi ég já.