04.12.1980
Sameinað þing: 29. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1115 í B-deild Alþingistíðinda. (1057)
Varamaður tekur þingsæti
Forseti (Jón Helgason):
Mér hefur borist eftirfarandi bréf:
„Reykjavík, 3. des. 1980.
Ólafur Jóhannesson, 5. þm. Reykv., hefur í dag ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Reykjavík, Haraldur Ólafsson dósent, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.
Helgi Seljan,
forseti Ed.“
Haraldur Ólafsson hefur áður átt sæti á þessu þingi og býð ég hann velkominn til starfa.