12.12.1980
Sameinað þing: 33. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1358 í B-deild Alþingistíðinda. (1355)

1. mál, fjárlög 1981

Árni Gunnarsson:

Herra forseti. Ég vil benda á að það, sem hér er að gerast nú, er fullkomlega óeðlilegt í umr. um fjárlög, 2. umr. eins og hér á sér stað, að fjmrh. skuli getað haldið hér langa ræðu þegar eftir að frsm. 1. minni hl. hefur flutt mál sitt, þá kemur hann hér upp og talar í tæpan hálftíma. Mér er kunnugt um samkomulag sem gert var á milli hans og frsm. 2. minni hl. í fjvn. Það var um það, að hann gerði stutta athugasemd við framsögu fyrir nál. 1. minni hl. Þetta tel ég fullkomlega óeðlilegt og megi ekki eiga sér stað.