13.12.1980
Sameinað þing: 34. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1426 í B-deild Alþingistíðinda. (1398)

1. mál, fjárlög 1981

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Sú hefð hefur verið viðurkennd, að þm. hvers kjördæmis færðu til fjármagn innan kjördæmisins til framkvæmda á sviði hafnamála. Ég vil ekki verða til að rjúfa þá hefð, þó að ég telji að þarna hafi þm. Norðurl. v. tekið nokkuð hæpna ákvörðun, og segi já.