24.02.1981
Sameinað þing: 54. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2518 í B-deild Alþingistíðinda. (2699)

Umræður utan dagskrár

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Ég vek athygli á því, að þrír þm. höfðu kvatt sér hljóðs á undan hæstv. sjútvrh. Hæstv. sjútvrh. kvaddi sér ekki hljóðs fyrr en rétt á slaginu fjögur. Ég fæ ekki séð að ástæða hafi verið til að hleypa honum fram fyrir aðra þm. í þessum umr., — allra síst eftir þann skæting sem hæstv. forsrh. viðhafði áðan.