13.04.1981
Neðri deild: 79. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3679 í B-deild Alþingistíðinda. (3758)
217. mál, lánsfjárlög 1981
Árni Gunnarsson:
Herra forseti. Ein helsta röksemdafærsla Alþb. gegn lántöku til undirbúnings smíði flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli var einfaldlega sú, að fjármagn skorti til innlendra flugvalla, öryggistækja og annars búnaðar. Ég fellst á röksemdafærslu Alþb. að því leytinu að allan þennan búnað skortir. Þess vegna segi ég já.