12.11.1980
Sameinað þing: 18. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 648 í B-deild Alþingistíðinda. (499)
Rannsókn kjörbréfs
Forseti (Jón Helgason):
Mér hefur borist eftirfarandi bréf:
„Reykjavík, 11, nóvember 1980.
Kjartan Jóhannsson, 2. þm. Reykn., hefur ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Alþfl. í Reykjaneskjördæmi, Ólafur Björnsson útgerðarmaður, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.
Helgi Seljan,
forseti Ed.“
Eins og fram kemur í bréfinu þarf að fara fram rannsókn á kjörbréfi Ólafs Björnssonar. Vil ég biðja kjörbréfanefnd að taka það til athugunar og verður gefið fundarhlé á meðan. — [Fundarhlé.]