20.05.1981
Neðri deild: 102. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4770 í B-deild Alþingistíðinda. (5010)

203. mál, veiting ríkisborgararéttar

Árni Gunnarsson:

Herra forseti. Á fundi fyrr í dag áminnti forseti þdm. um mætingarskyldu samkvæmt þingsköpum. Hér er verið að afgreiða í kvöld stór og mikilvæg mál. Í deildinni er ekki einn einasti fulltrúi Sjálfstfl., nema þeir menn, sem verða að sinna embættisskyldum, og einn stuðningsmaður ríkisstj. úr þessum flokki. Þetta vildi ég benda á.